Jólagjafir & jólaskil

Hér finnur þú allar helstu upplýsingar um jólagjafir, vöruskil og opnunartíma MONY BODY yfir hátíðarnar.

Skil og skipti á jólagjöfum

Síðasti dagur til að skila eða skipta jólagjöfum er 12. janúar 2027.

Athugið að eingöngu er hægt að skipta jólagjöfum í aðra vöru eða fá inneign. Ekki er boðið upp á endurgreiðslu fyrir jólagjafir.

Skilyrði fyrir vöruskilum

Sömu skilmálar gilda um jólagjafir og önnur vöruskil hjá MONY BODY.

  • Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegu ástandi.

  • Allir vörumiðar þurfa að vera áfastir.

  • Varan þarf að vera hrein og laus við bletti, lykt eða önnur ummerki um notkun.

Við áskiljum okkur rétt til að hafna vöruskilum ef varan uppfyllir ekki þessi skilyrði.

Hvar er hægt að skila jólagjöfum?

Hægt er að skila eða skipta jólagjöfum með eftirfarandi hætti:

Í verslun Kjólaleigu: Grensásvegur 1A, 108 Reykjavík.

Með Dropp: Hægt er að senda vörur til okkar með Dropp. Vinsamlegast hafið samband við okkur áður en varan er send.

Jólaopnunartímar

Við verðum með sérstaka opnunartíma í versluninni milli jóla og nýárs og aftur í janúar svo allir hafi tækifæri til að skila eða skipta jólagjöfum.

Nánari opnunartímar verða birtir á heimasíðunni okkar og samfélagsmiðlum í desember.

Spurningar?

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi jólagjafir, skil eða skipti er þér alltaf velkomið að hafa samband við okkur í tölvupósti á contact@monybody.com.

Við svörum öllum fyrirspurnum innan 48 klukkustunda.